| Heim | Email | Blogger | Newcastle | EddieIzzard | Sexylosers | Mogginn | Maystar | "yppie kay ye motherfucker" |
Löllskj

Archives June 2002
July 2002
August 2002
September 2002
October 2002
November 2002
December 2002
January 2003
February 2003
April 2004

Monday, September 30, 2002

Ég er doldið spenntur að vita hvað sex.is hefur uppá að bjóða!


Kunngjört af Löllskj at 14:58

ég biðst afsökunar á bloggleysi....einhverra hluta vegna hefur blogger ekkert verið að hleypa mér inn:s


Kunngjört af Löllskj at 14:40

Mig sveið í augun við að sjá ÞETTA DO NOT SEE THIS LINK!!! you HAVE been warned!!!:s


Kunngjört af Löllskj at 01:23

Hvað kenna þeir eiginlega á bifröst??? Hérna er allaveganna síða sem sýnir það að þar er fólk að plotta einræði á Íslandi


Kunngjört af Löllskj at 01:22

Sunday, September 29, 2002

bloggerinn er búinn að sjúga í allan dag!!!


Kunngjört af Löllskj at 14:54

Mæli með því að ALLIR fari að lyfta eða hreyfa sig e-n veginn!!! veit vel að það er erfitt...til að byrja með, en síðan þegar mar fer í HEITAN pott á eftir, og þreytan blandast vatninu, þá er maður ÞVÍLÍKT ferskur á eftir, MJÖG gott gegn þunglyndi, pirringi, reiði, geðvonsku og hatri...ath maður getur orðið haður vellíðunartilfinningunni sem fylgir, enda launar líkaminn RÍKULEGA fyrir eftirá!!!


Kunngjört af Löllskj at 08:22

Muniði þegar ég sagði að ég væri að nálgast 1900??? Jæja, nú er svo komið að ég er að nálgast friggin 2000 heimsóknir!!!! Gjafir vinsamlegast þakkaðar og vel notið! ég vil:

Nýtt flottara lúkk á síðuna(hún VERÐUR að vera flottari heldur en estherererererararar og kisunar til samans!!!
e-n til að nudda á mér bakið
Windows xp sem talar ENSKU, en ekki ÞÝSKU
Klára skólann í einum grænum og farað vinna
Komast á forsíðu fókus
Verða frægur bloggari
Fá link frá ÖLLUM blogsíðum í HEIMINUM
Vinna $400.000.000 í lottói(eða bara verið gefið)
Fara hringinn í kringum heiminn

takk jú very much!


Kunngjört af Löllskj at 02:57



What Was Your PastLife?

HUHH!!! Og ég er einmitt að lesa heimspeki í laganáminu!!!


Kunngjört af Löllskj at 02:40

Saturday, September 28, 2002

sjáiði þessa síðu, hún er FOKKING brill!!! linkaði á hana á blogglistanum


Kunngjört af Löllskj at 14:02

1900 gesturinn kominn og farinn, án þess að gera grein fyrir sér...dónaskapurinn:s


Kunngjört af Löllskj at 12:59

er að nálgast 1900asta gestinn!!! verður að gera grein fyrir þér góurinn!


Kunngjört af Löllskj at 07:15

strákurinn er loksins kominn með mynd á síðuna, hún er rétt fyrir ofan teljarann, ská-til-hægri...lesist "lunchbox"


Kunngjört af Löllskj at 04:43

Í nótt, þegar ég var að reyna að lúlla mér, þá var ég vakinn frekjulega af wacko x-inu, sem betur fer hringdi hún ekki(þá). Það tókst loksins það sem ég hef reynt í meira en ár! Að fá hana til að halda að ég væri með stelpu, þó svo ég hafi meira að segja verið með stelpu í millitíðinni, þá hefur manneskjan hreinlega ekki trúað mér!!! VONANDI VONANDI VONANDI VONANDI er loksins kominn closure á þetta hel... sem er búið að ganga ALLT of lengi!!!
Út af hverju tala ég um að hún sé wacko?...let's try this: Laug að mér að hún væri ólétt, laug að mér að pabbi hennar væri dáinn(síðan kem ég og ætla bara að hugga hana, en þá er fyrrverandi tengdó að slá garðinn og kallar bara "blessaður", for a dead guy, þá var hann ósköp hress, vona bara að ég verði svoleiðis þegar ég dey!) og síðan koma ENDALAUS vonbrigði, sem ég ætla ekkert að vera að fara nánar útí fyrir framan alþjóð!


Kunngjört af Löllskj at 04:38

ok, fyrsta jamm vetrarins, ekki það síðasta, í heildina litið ágætt, þó það sé e-ð sem ég hafi fundið að, það er e-ð sem fólkið sem var með mér veit hvað er.
síðan til að svara spurningu sem ég fékk, þá fílaði ég alla krakkana sem voru þarna! Ég fílaði suma meira en aðra!


Kunngjört af Löllskj at 02:47

Friday, September 27, 2002


Who's Your Movie Sidekick? Find out @ She's Crafty

heyrru ni ni ni ni ni ni ni ni ni ni ni, ég er skvo engin sædkikk!!! Allana er komin langumbeðin mynd af mér:D

og ef þessi er ekki nóg, þá er þessi vonandi nóg!!!


Kunngjört af Löllskj at 06:42

Við eina af mörgum eftirlitsferðum mínum, tók ég eftir því að nægí gellan er komin með feitan link á mig......i always pay my dues!!!


Kunngjört af Löllskj at 06:24

Hver segir að það gerist ekkert á bókasafni??? Í dag sá ég, á leið minni í tíma, tvo(sennilega indverja, þótt ég hafi ENGA hugmynd um það) klædda túrbínum(eða hvað þeir kalla samanvöfðu handklæðin sem þeir hafa á hausunum) ok, flott hjá þeim, en gátu þeir ekki verið í e-m minna áberandi lit heldur en SKÆRappelsínugulum???....just a thought...þó svo mér komi það náttla ekkert við:)


Kunngjört af Löllskj at 06:17

Ógsla skrýtið!!! Ég er alltaf að finns sona stöðurafmagnslykt!!! Hvað ætli það þýði? Meira skrýtið, um daginn fann ég þessa líka MEGNU brennisteinslykt yfir reykjavík, en enginn annar virtist finna hana, getur verið að það sé því ég sé utanbæjarmaður, og reykvíkingarnir bara samdauna henni?(það frýs allavega ekki í helvíti:D) En nota bene, þetta var sama daginn og vonda lyktin frá íslandi kom til færeyja...c'est trés bizarre!!!


Kunngjört af Löllskj at 03:41

Ég varð að stela þessu af síðunni hennar íslilju...Thanx a bunch!


Kunngjört af Löllskj at 01:41

JEIJ!!! Ég er orðinn pabbi, and know what...kisan er orðin AMMA!!!:D BARA fyndið!!!


Kunngjört af Löllskj at 01:40

Thursday, September 26, 2002

tag-bordið virkar ekki...veit ekki hvað er að!!! er steypa hjá öðrum líka??? Þýðir náttla ekkert að svara á tagbordinu


Kunngjört af Löllskj at 13:09

Fyrst vídjóin eru komin aftur í tísku, vil ég bara benda fólki á vídjóið fyrir ofan spjallið!!! og það kom á UNDAN öllum öðrum vídjóum...allaveganna á undan vídjó æðinu


Kunngjört af Löllskj at 09:37

bloggerinn sýgur...kemst ekki inná neinar síður, nema fyrir púra tilviljun, að því er virðist


Kunngjört af Löllskj at 04:53

ég eyddi commentskerfinu, enginn notaði það og síðan varð þyngri en gumpurinn á völu matt!


Kunngjört af Löllskj at 04:47

Ætlar fólk að nota commentskerfið, sem ég eyddi MIKLUM tíma í að setja inn, eða er þetta bara sóun á plássi???


Kunngjört af Löllskj at 01:42

Wednesday, September 25, 2002

Laganördar eru að fara að keppa í klóbó 27. sept!!! langar GEGT að keppa! ALLIR AÐ MÆTA FÖSTUDAGINN 27. SEPT OG STYÐJA 1. ÁR Fáið (kannski) bjór frá orator!


Kunngjört af Löllskj at 09:15

Hrein snilld, að gerapíanó úr legokubbum!!!


Kunngjört af Löllskj at 09:08

Það var fragmaninn sem varð nr 1700:D Var að lesa síðuna hjá honum, það er eitthvað sem ég á eftir að gera aftur, linka jafnvel á hann!!!




Kunngjört af Löllskj at 08:40

LO(X)INS LO(X)INS LO(X)INS LO(X)INS og aftur LO(X)INS!!! stráknum tókst loksins að koma komment kerfi á hjá sér!!! Það fer ALFARIÐ eftir því hvort síðan þyngist e-ð að ráði og hvort þetta system verði eitthvað notað, að ég haldi því!!!!!!!


Kunngjört af Löllskj at 08:36

Umferðarlögin geta verið spennandi, og ÆTTU að vera skyldulesning í umferðartímum!!!

vegna náms míns við lagadeild háskóla íslands, þarf ég að lesa doldið í lögum og reglum(skiljanlega) og fann þar þessa skemmtilegu lagagrein:

51. gr. Ökuskírteini eru tvenns konar: Bráðabirgðaskírteini og fullnaðarskírteini.
Bráðabirgðaskírteini er gefið út til byrjanda og gildir í tvö ár.
Fullnaðarskírteini gildir þar til hlutaðeigandi er fullra 70 ára. Dómsmálaráðherra getur ákveðið, að ökuskírteini til að mega stjórna ökutækjum skv. 50. gr. skuli gilda skemur.
Dómsmálaráðherra setur reglur um gildistíma ökuskírteina, sem gefin eru út til þeirra, sem eru fullra 70 ára. Dómsmálaráðherra getur enn fremur ákveðið, að ökuskírteini skuli, ef aðstæður mæla með því, gilda skemur en ákveðið er í 3. mgr.
[Fullnaðarskírteini til þess sem hefur bráðabirgðaskírteini má gefa út, fullnægi hlutaðeigandi eftirtöldum skilyrðum:
a. hafi haft bráðabirgðaskírteini samfellt í eitt ár, farið í akstursmat og fengið að því loknu umsögn ökukennara um árangur þar sem mælt er með útgáfu fullnaðarskírteinis,
b. hafi ekki í eitt ár samfellt fengið punkta í punktakerfi vegna umferðarlagabrota eða á sama tíma verið án ökuréttar vegna sviptingar.
Nú fullnægir hlutaðeigandi skilyrðum a-liðar en ekki skilyrðum b-liðar 5. mgr. og skal þá gefa út bráðabirgðaskírteini á ný að loknum gildistíma þess.]1)
Endurnýja má ökuskírteini að loknum gildistíma, enda fullnægi hlutaðeigandi enn skilyrðum til að fá ökuskírteini útgefið. Lögreglustjóri ákveður, hvort taka skuli próf að nýju. Dómsmálaráðherra getur sett reglur um að próf skuli tekið að nýju.
1)L. 83/2002, 1. gr. Breytingin tekur gildi 1. jan. 2003, sbr. 15. gr. s.l.

Þetta þýðir á mannamáli að ALLIR sem ætla að fá fullnaðarskírteini á NÆSTA ári, mega EKKI hafa fengið punkt á tímabilinu, þetta á semsagt við þá sem hafa misst prófið, 84 modelin OG 85 modelin!!! Viljiði pæla, sá sem fékk bráðabirgðaskírteini í janúar á þessu ári(enda 17 ára afmælisdagurinn þá) fær fullnaðarskírteini ef hann hefur EKKI fengið punkt og ökukennari mælir með því að sá sami fái skírteinið! Þetta þykir mér þróun í rétta átt skvo!!! Því ef hann fær ekki fullnaðarskírteinið, þarf hann að fá nýtt bráðabirgaskírteini!!!


Kunngjört af Löllskj at 04:16

hver verður gestur nr 1700? Láttu vita!!!


Kunngjört af Löllskj at 01:47

Til að svara nýjasta kommentinu í gestabókinni, þá ætla ég að koma því á framfæri að ég hef örugglega verið að svívirða þá sömu í gömlum artsjivsum, og sem skrifaði í mína gestabók....so no luck there!


Kunngjört af Löllskj at 01:46

Enn meira af morgunumferðinninninninninninninni...Það er alveg hroðalega mikið af vondum ökumönnum á Íslandi!!! Meira að segja ökumennirnir í New York eru BETRI heldur en íslenskir ökumenn! Fólk er að SNARHEMLA bara uppúr þurru, þegar það nálgast ljósagatnamót og það er komið gult ljós, ég meina, það eru örugglega 5 sekúndur í að rauða ljósið kemur, and by that time, you'll be long since gone!!! Oftar en einu sinni og oftar en tvisvar sem svoleiðiðs "fólk" hefur valdið árekstri, reyndar fannst mér gegt fyndið áðan, en þar voru einhverjir tveir sem lá ROSALEGA mikið á, og aksturslagið hjá þeim var alveg eftir því, og hvað skeði, á gatnamótum miklubrautar og bústaðarvegar(við landsspítalann) fóru þeir yfir á rauðu, og fá flotta mynd á jólakortið hjá sér, good on 'em:D


Kunngjört af Löllskj at 01:34

Tuesday, September 24, 2002

Ég var að labba úti áðan, sem væri að sjálfsögðu ekki í frásögur færandi, nema það að það er rigning úti, ekki sona smá úði eða skúr, heldur hlussu dropa rigning sem hættir ekki eftir hálfa mínútu, þannig að strákurinn þurfti að labba í 30 mín í mígandi rigningu, hef ekki einu sinni lent í sona í nú jork, og þar kemur SLÆM rigning, þegar hún kemur! So anywho, nenniggja vera í bloggfílíng í sona blautum fötum....


Kunngjört af Löllskj at 09:18

tilveran er að auglýsa eftir myndböndum....sendi þeim vídjóið sem hægt er að finna fyrir ofan spjallið


Kunngjört af Löllskj at 02:21

Missti alveg af sörvævor, þannig að ég fer ekkert að segja neitt um það for now, hlakkar samt til að sjá þáttinn eftir tvær vikur þar sem fólk fer barasta að slást:D
Ég var í umræðutímum í lögfræði í gær, þar sem strákar á 4. og 5. ári voru að "kenna" annar þeirra leit út eins og simmi í 70mín og hinn eins og tom green í the tom green show, sem allir ættu að kannast við(en það er einn ruglaðasti þáttur sem ég hef séð!!!) Ég beið bara eftir að gæinn kæmi inn með slöng og færi að kyssa hana


Kunngjört af Löllskj at 02:20

Monday, September 23, 2002

sörvævor er byrjað aftur!!! EKKERT blogg fyrr en það er búið!!!


Kunngjört af Löllskj at 13:29

Ein nefaðgerðin enn hjá Michael


Poppkóngurinn Michael Jackson er búinn að fara í enn eina nefaðgerðina en það sást til hans þegar hann gekk inn í safn í Las Vegas með umbúðir um nefið. Jackson hélt á regnhlíf til að skýla sér en þrátt fyrir það spurði einn ósvífinn safngestur hvað gengi að. „Fór í aðra aðgerð," svaraði Michael.

Popparinn sérvitri hefur dvalið síðustu tvo mánuðina í þessari höfuðborg fjárhættuspila í heiminum ásamt tveimur sonum sínum. Í síðustu viku bárust fregnir af því að Michael hefði eytt hvorki meira né minna en þremur milljónum króna í gullslegna líkkistu. Hann hefur kannski eitt sinn verið skáti og kýs að vera ávallt viðbúinn.

ehemm! hefur einhver séð manninn!!!??? Ég get nú ekki betur séð en maðurinn sé þegar dauður, allaveganna er hann NÁFÖLUR, þannig að ef ég sæi hann sofandi, og vissi ekki betur, héldi ég að hann VÆRI ÞEGAR steindauður!!! Þannig að kannski er hann bara að versla sér rúmi?


Kunngjört af Löllskj at 11:22

Ich habe Hunger....ég er svo svangur að ég er orðinn andfúll...sem er ekki gott...verð að fara í 10-11 og kaupa mér snickers, sem er mjög gott


Kunngjört af Löllskj at 03:27

Núna er hægt að sjá hvað margir eru "á línunni"....þökk sé "sumum aðilum" þá þarf maður að fara aö nördast töluvert til að vera fremri en "þessir ákveðnu aðilar":D


Kunngjört af Löllskj at 02:11

Trausti er í viðgerð!!!!!! I feel so lonely without him...so dependent on others:'( við höfum aldrei áður verið aðskildir, nema náttla þegar ég fór til úglanda í fyrrasumar og í febrúar, but that doesn't count sko, þar sem við skildumst að voulantarily(þ.e.a.s. ég fór með vilja) en þökk sé kallinum sem keyrði á hurðina, þannig að mar fékk nett þunglyndiskast við að sjá beyglið, síðan ef á að sjá ðí bræt sææd, þá fæ ég spánýja hurð, og tókst að klína beyglu inná sem bróðir minn gerði, þegar hann brummaði á bílinn minn í fyrsta sinn sem hann parkaði bílnum(daginn sem hann fékk æfingarleyfi)...ROSALEGA ER ÉG FEGINN AÐ HAFA FUNDIÐ VARALYKILINN AÐ BÍLNUM SEM VAR FALINN INNÍ LÆSTUM SKÁP HJÁ HONUM!!
Síðan er það fólk í morguntraffíkinni, mér finnst að það ætti að banna með lögum að stórir, þungir og hægfara bílar keyri á vinstri helming götunnar....þvílíkur horror að lenda fyrir aftan solis!!!


Kunngjört af Löllskj at 02:01

Sunday, September 22, 2002

leilett hvað teljarinn er leiðinlegur í viðmóti, vill bara ekkert segja mér ratingsið mitt


Kunngjört af Löllskj at 14:20

hurru, það endaði þá bara með því að ég varð nr 1600....how lame am i:D


Kunngjört af Löllskj at 14:20

ég er að ná 1600asta gestinum....hlakkar svooo tiiil:) Láttu vita hver þú ert!


Kunngjört af Löllskj at 01:54

Saturday, September 21, 2002

Móðir sem barði barn sitt gaf sig fram í kvöld

Móðir, sem talin er hafa slegið og hrist 4 ára dóttur sína í bíl utan við verslunarmiðstöð í Indiana í Bandaríkjunum gaf sig fram við lögreglu í kvöld. Myndir, sem teknar voru með öryggismyndavél af barsmíðunum, voru sýndar í sjónvarpi um öll Bandaríkin í gær og þekktist konan á myndunum.
Konan, sem heitir Madelyne Gorman Toogood, og er 26 ára, kom á lögreglustöð ásamt lögmanni sínum í kvöld, átta dögum eftir árásina. Dóttir konunnar var með henni þegar hún gaf sig fram. Samkvæmt handtökuskipun, sem gefin var út á hendur Toogood í gær, er hún grunuð um misþyrmingar á barni en viðurlög við því eru allt að 3 ára fangelsimbl.is

Hvað er að heiminum í dag??? Á vídjóinu eru tvær konur að labba með börnin sín í góðum fíling, bara syngjandi strumpalagið og alles "nana na nanana na na nanana" Mamman lyftir stelpunni í bílinn, like a caring mother, síðan bara BAMM BAMM, BÚMM, vantaði bara stafina skrifaða á skjáinn eins og í gömlu batman þáttunum...Það ætti nú bara að vana þessa belju sko!!!


Kunngjört af Löllskj at 18:34

sá my x-best friend, BARA gaman að sjá fólk sem manni þykir svona vænt um, en hefur ekki séð í jafnlangan tíma(eitt heilt f-in ár)


Kunngjört af Löllskj at 14:54

Nenni ómögulega að segja skapaðan hlut um helgina, kem á mánudaginn....then again, IF I don't promise something, i tend to break it


Kunngjört af Löllskj at 12:10

Friday, September 20, 2002

Ég ætla ENGUM orðum um það að fletta hvað djúpalaugin var brillerandi! Þeir sem misstu af, HORFIÐ Á HANA ÞEGAR HÚN VERÐUR ENDURTEKIN!!! Ég hef enga hugmynd um hvenær það verður!!!


Kunngjört af Löllskj at 16:03

ég var á undan esther með skúbbið, sem ég fann á mogganum


Kunngjört af Löllskj at 09:57

Faðir allra Túrkmena vill loka spilavítum
Dagblað sem Saparmurat Niyazov, forseti Túrkmenistan, stofnaði, leggur í dag til að spilavítum í landinu verði
lokað og í þeirra stað verði opnaðar stofur þar sem fólk getur lesið kenningar forsetans.
„Við heitum á eigendur spilavíta að loka þessum gleðihúsum," skrifar leiðarahöfundur blaðsins Adalat undir fyrirsögninni Viðskipti Satans munu hrynja. Segir einnig í greininni að spilavíti séu andstæð menningu Túrkmena og þau sæki venjulega ríkir karlmenn í fylgd lauslátra kvenna. Loks er lagt til að opnaðir verði lestrarsalir í stað spilavítanna, þar sem fólk geti komið og lesið Rukhname, kver eftir forsetann þar sem Túrkmenum er sagt hvernig þeir eigi að hugsa og haga sér. Rukhname er skyldulesning í öllum skólum landsins.

Niyazov er einráður í Túrkmenistan og ræður yfir flestum fjölmiðlum í landinu, Hann vill láta kalla sig Turkmenbashi. eða föður allra Túrkmena. Á síðasta ári lét hann loka einu óperunni í landinu og einnig balletthúsi þar sem þau samræmdust ekki hugarfari þjóðarinnar.mbl.is

Ef þetta er ekki sá mesti einskörungsháttur(veit ekkert hvað orðið þýðir, fannst það bara passa), þá veit ég ekki hvað!?!?!? Það er ekki til einasta stofnun í landinu sem ber ekki nafn hans, hann leyfir þinginu "náðarsamleg leyfi" til að breyta vikudögum og mánaðarheitum, til hves í ósköpunum að kjósa þingmenn??? Hver kaus hann forseta fyrir lífstíð? Eyðandi öllum peningum landsins í tennisvelli. Er einhver ríkur, hvað þá karlmaður í túrkmenistan? ef svo er, er ég viss um að manninum hefur náðasamlegast verið meinað aðgangur að spilavítunum og "rich men social club" og er núna að hefna sín á þeim, það er spurning hvort bandaríkin ættu ekki bara að leita þangað? Hmmmmmmmm.....Mig grunar kannski smá að þessar sögur af þessum manni séu jafnsannar og þær sem morgunblaðið sagði fyrir 10 árum síðan um risaeðlur(voru sagðar í miðju djúrassigg parkk æðinu)


Kunngjört af Löllskj at 09:55

og nú tilveran, þegar kisan er loxins staðin upp....where's the world heading to???


Kunngjört af Löllskj at 09:22

kisan liggur, hvernig á ég nú að láta mig dreyma um að komast uppá hana?:D


Kunngjört af Löllskj at 09:03

Another brick in the wall er snilldarlag!
did u kow: þegar krakkarnir voru að syngja "we don't need no education..." þá hafði skólinn verinn gagnrýndur fyrir litla stjórn á nemendum sínum, og eftir að krakkarnir höfðu sungið þetta, var skólastjóranum bara sparkað, væntanlega verið heitt undir sætinu hans þá þegar sko


Kunngjört af Löllskj at 09:00

ég helt ég ætti bara ekki annað eftir þegar ég komst að því að sonný hefði bara borðað eitthvað af glósunum mínum, og ég ekki einu sinni getað skoðað í úrganginn!!! En svo er henni Ernu Dögg fyrir að þakka að þetta reddaðist allt saman! Þvílík tilviljun að hitta á stelpu sem útskrifaðist úr my old skúl þegar ég var að klára busaárið mitt í sama fagi og ég er í:D


Kunngjört af Löllskj at 07:20

Þegar ég labba frá þjóðarbrókhlöðunni í háskólabíó, er hótel saga þar mitt á milli, þar er banki sem kallast búnaðarbankinn, þar er skilti sem venjulega segir búnaðarbankinn, en segir núna búnaðarban inn en ekki búnaðarban(K)inn...ég hlæ að eigin grafarhúmor:D


Kunngjört af Löllskj at 03:32


What kind of soda are you?? Find out @ blackhole

Ok, I had to add this...mándn dú er ágætt, betra en það sem esther fékk, væld tsjerrí YUCK!


Kunngjört af Löllskj at 01:55

Það tókst ekki, 1500 gesta múrinn hefur ekki verið rofinn, í mótmælaskyni...,blogsilence þangað til múrinn verður rofinn(enda ekki nema 2 eftir að koma til að rjúfa þann múr)


Kunngjört af Löllskj at 01:51

Thursday, September 19, 2002

UPDATE!!
ÖPPDEITIÐ Á LAGANEMUM ERFEITLETRAÐ
Laganemar:
Beverley Hills gaurinn
Glæstu vona gaurinn
The fembots
Michael Jackson
The Gay-ng
Plebbar
Annoying know it all wannabe
Flotta Ísl – Asíska gellan
Silicon Valley
Mr. Knows it all
Spice Girls
Che Guevara
Brjóstastrákurinn
Strætóstelpan
Angelina Jolie/Tombraiderstelpan
Sleikjandi Plebbinn
Ath, þessi listi er ekki tæmandi, en á ég eftir að finna nöfn á aðra laganema. Öll nöfnin sem hér hafa komið fram, eru hér af ástæðu, s.s. nöfn þeirra eru mynduð af lýsingar/nafnorði sem passar þeim



Kunngjört af Löllskj at 12:51

wannabeMr.know it all er líka BLOGGARI!!!! ég veit ekki enn hver hann er, BUT I'M GONNA FIND OUT!


Kunngjört af Löllskj at 12:38

Ég er sybbinn, nenniggi að segja neitt meira í kvöld, en kem með e-ð júsí á morgun, ég er að reikna með því að 1500 manna múrinn falli á morgun, EINS GOTT AÐ ÞIÐ BREGÐIST MÉR EKKI!!!


Kunngjört af Löllskj at 12:38

Elrond

Elrond

If I were a character in The Lord of the Rings, I would be Elrond, Elf, ruler of Rivendell and father of Arwen.

In the movie, I am played by Hugo Weaving.

Who would you be?
Zovakware Lord of the Rings Test with Perseus Web Survey Software




NÁKVÆMLEGA....HANN ER BARA SVALASTUR ÍSUM MYNDUM, mikið flottar heldur en galadriel
Svo er bara að pissa á sig af spenningi eftir að the two towers kemur út, ég VEIT að hún Á eftir að verða BETRI heldur en fellowship of the ring, enda var ég í allan júní mánuð að lesa bækurnar þrjár, þ.e.a.s. þegar ég var ekki að vinna, en ég var örugglega að vinna 16-18 tíma á sólarhring:s
Hann var bara góður vondikall í the matrix!


Kunngjört af Löllskj at 01:49

Wednesday, September 18, 2002

Það var nú samt gaman í þessu viðtali, þrátt fyrir allt, enda þurfti strákurinn að máta skyrtu vegna hugsanlegrar inngöngu, og var þetta í fyrsta skipti, og vonandi EKKI það síðasta...Það þarf náttla ekki að taka það fram að strákurinn var vonum framar glæsilegur í búning, sem ætti nú að gefa góða hugmynd um framtíðina


Kunngjört af Löllskj at 13:50

leit.is rúllar, þeir sáu til þess að steinninn er aftur finnanlegur


Kunngjört af Löllskj at 08:25

Jæja, viðtalið er búið, shit þetta var eins og spænski rannsóknarrétturinn...maður var skvo rakinn í gegn, þannig að þræðirnir voru einir eftir! Ekki nógu gott! Ég er hæfilega bjartsýnn, nota bene, það voru 64 sem höfðu verið í lögreglunni áður sem sóttu um, and i ain't one of them, því er nú ver skvo!:s


Kunngjört af Löllskj at 07:42

Mér finnst snilld að peps skuli vera að reyna að senda fólk útí geim sko! Hugsa að ef mar drekkur pepsi, síðan er geimskip kannski í tappanum, þá fær mar að fara í ríalití þátt og reynir að vinna ferð útí geiminn, mér hefur alltaf þótt pepsi gott og mér hefur alltaf þótt gaman af ríalitíþáttum, nema bachelor, þarna erótísku eyjunni og solis þáttur, sem skilur lítið eftir nema sörvæfor og þarna þáttinn á stöð 2 sem ég manekki hvað heitir en er voða einsleitur, FEAR FACTOR


Kunngjört af Löllskj at 03:06

Bætti við link á híman heimasíðunar...Hann var bara kúl, á meira að
segja enn mest allt af draslinu frá því ég var lítill, þ.e.a.s. ef bróðir minn hefur ekki stolið því:s


Kunngjört af Löllskj at 02:57

Courtesy costs nothing, það er hugtak sem þessir plebbar í notendaþjónustu reiknistofnunar háskólans ættu að kynna sér for sure! Allaveganna ljóshærði gaurinn með sítt sleikt að aftan, mar kemur þvílíkt almennilegur, þykist meira að segja ekki vera meiri maður en hann,þó ég viti að ég er það:D:D:D Hann er bara "ég gerði nákvæmlega það sem þú sagðist hafa gert, þótt ég segðist aldrei hafa gert það isspiss sko! Ég VEIT að það kemur hingað fólk sem er tengt reiknistofnun háskólans, rhi.is, what do u feel about it? Er þetta svipað og með nemendaskrá??? Sjálfur hef ég ekkert þurft á henni að halda hingað til, þannig að ég hef ekkert verið að venja komur mínar þangað...somebody tell me...I'm dying to know!


Kunngjört af Löllskj at 02:48

Það er kannski gömul saga og ný, að F-in jeppabrummarar eru eins og kóngar í ríki sínu, þeir eru verri heldur en indverska kellingin í Áslandsskóla, sem trítar staffið sitt like her own personla gimps(Þeir sem vita ekki hvað gimp er, ættu að horfa á pulp fiction, en þeir sem nenna því ekki, þá er gimp annað orð yfir kynlífsþræl, sem er geymdur á einhverjum torment stað, s.s. ísskáp, frystikystu eða þaðan af verra, og síðan tekin út þegar "eigandinn" þarf á því að halda, eða einhver/einhverjir vinur/vinir...virkilega ógeðslegt lið, sem ætti að vera skorið undan á almannafæri, gefið hundunum draslið og látið þá horfa á þegar þeir japla á "góðgætinu", grey hundarnir, að hafa ekki betri smekk en þetta!!!)
Aftur að jeppabrummurum, þeir sjá ekki(vilja ekki sjá því þeir eru með svo lítil typpi, eða saggí brjóst og í vondu hjónabandi útaf því BWAHAHAHAHAHA...ég hlæ að eigin grimmd) saklausa golfeigendur, sem eru bara í góðum fíling, að stressa sig ekkert í ógeðslegamikilli morguntraffík en svo koma þeir bara, og sem betur fer eru myndarlegu strákarnir rólegir sem steinn, þannig að þeir ná með naumindum að forða því að frekur jeppaeigendurnir ýti þeim bara ekki fram yfir handrið brúarinnar sem er hluti af miklubraut(vesturlandsvegar) og er yfir hafnarfjarðarveginum(sæbrautinni)...þá hefði ekki verið mikið eftir af steininum, hann hefði bara getað farið í þúsund mola, svarti húmorinn í algleymingi.
Note to self: IF you'll get to be a cop, mundu þá að taka með þér umferðarkylfuna þegar þú sektar jeppabrummara, og þó, ekki myndi ég vilja fara illa með annara manna tól


Kunngjört af Löllskj at 01:46

Tuesday, September 17, 2002

Ég er að fara í inntökupróf fyrir lögregluskólann á morgun....WISH ME LUCK!!!!


Kunngjört af Löllskj at 06:50

Eminem

Oh yeah, the rock star in you is definitely the ultimate bad boy, Eminem. You are a risk taker and a rebel who never sticks to the straight and narrow. Your irrepressible energy means that nothing can keep you down. You and Eminem rise to any challenge, doing and saying the outrageous and shocking whenever you feel like it, and keeping the fans on their toes with your controversial views. Look at it this way: a man like you knows how to find the perfect medium to channel your frustrations with the world. And lo and behold, we can't get enough of you. Keep your inner Eminem real.

Er rödd fólksins EMINEM eða EMINEM rödd fólksins???


Kunngjört af Löllskj at 02:18

ALLIR AÐ SEGJA TILVERUNNI HVAÐ STEINNINN ER FUN PLACE TO BE AT!!!


Kunngjört af Löllskj at 02:09

Monday, September 16, 2002


aquarius



What's *Your* Sex Sign?

Ég er að verða vissariririririririri og vissariririririririririri um að þessi próf eru ekki hreinasta bull!


Kunngjört af Löllskj at 15:50

Esther er voða kúl, hún linkar á sína hómís!!! Hún átti skilið að vera pimpuð, þó svo )#&(%"(&"$(/=&$" á tilverunni skuldi mér ennþá link!


Kunngjört af Löllskj at 15:40

Ég veit ekki hvað ég á að segja!!! HE-MAN er á leiðinni aftur!!! Eftir að hafa tekið hann út úr dagskrá fyrir rosalega mörgum árum, hefur mattel ákveðið að smíða meira bara.
Eru þetta góðar eða vondar fréttir? Ég ólst upp með þessum dúkkum, eftir HE-MAN komu eftirlíkingar s.s. turtles, G.I. JOE og garbage pail kids, það kom meira eftir að ég óx upp úr því og ég ætla ekki einu sinni að minnast á það! Mun endurgerðin rýra minningu gamla HE-MAN? Veit ekki, en ég veit að litlu strákarnir eiga eftir að fíla híman alveg jafnvel og ég gerði, ásamt strákunum úr húddinu gerðu hér í den tíð, í ég veit bara ekki hvað mörg ár! Við skulum bíða og sjá til hve vandað næsta HE-MAN æði verður þangað til einverjir dómar verða felldir!


Kunngjört af Löllskj at 15:30

leiðinlegt þegarbloggkerfið er í fokksessi! hafa tvisvar sagt að steinninn sé einhver úglensk síða!!! Það er ekkert nógu kúl!, not that there's anything wrong with it! Bara smá hommaskapur, not that there's anything wrong with it:D Sá sem veit hvaðan ég stal þessum brandara á von á verðlaunum!


Kunngjört af Löllskj at 15:20

Hvenær er gaman að sjá diskóljós úti á vegi? Þegar þú ert að keyra hratt, mætir þeim, og þau eru stopp fyrir aftan ANNAN bíl:D BARA KÚL:D kom fyrir mig tvisvar á SAMA KLUKKUTÍMA!!!


Kunngjört af Löllskj at 15:16

leitin sýgur!!! þegar ég leita að silent bob, þá kemur linkur á steininn, en það er bara plat! Hann beinist að betunni, SO NOT COOL!!!


Kunngjört af Löllskj at 13:41

Er kjöt með hvítum hárum hæft til matar, ég held ekki, þess vegna fékk gesturinn okkar hún Frigg að eiga það...henni fannst það ekkert vont, enda var ég búinn að skera þetta hvíta af


Kunngjört af Löllskj at 11:55

Tilveran sýgur feitan böll!!!!!!!! Ég er viss um að það eru bara kallar sem hafa enn ekki misst sveindóminn sem vinna þarna!!! Enda pimpa þeir bara á fólk sem er með píku!!!
Esther er líka vond, því hún linkar mig aldrei þegar hún er að tala um mig!!!!!


Kunngjört af Löllskj at 11:01

Ég var alveg að verða vitlaus, f-in þráðlausa netkerfið var bara að fokka í mér sko!!! Sama hvar mar er, kemst mar ekki í það, sama þótt mar hafi verið áður á sama staðnum að netast!!! Ég er viss um að þetta er BARA skólanum að kenna!!!


Kunngjört af Löllskj at 07:52

JEIJ!!! lenti í þvílíkri steypu með steininn, en lagaði ALVEG SJÁLFUR!!! Þurfti sko ekkert nörd til að hjálpa mér:)


Kunngjört af Löllskj at 03:44

hei, HVER var númer 1300???


Kunngjört af Löllskj at 02:20

Sunday, September 15, 2002


Right-brained people are good at: Sports, artistic endeavors, geometry, writing fiction, recalling people's faces, and acting out stories.




Kunngjört af Löllskj at 09:56

Silent Bob, you are Right-brained

Most right-brained people like you are flexible in many realms of their lives. Whether picking up on the nuances of musical concerto, appreciating the subtle details in a work of art, or seeing the world from a different perspective, right-brained people are creative, imaginative, and attuned to their surroundings.

People probably see your thinking process as boundless, and that might translate to your physical surroundings as well. Some people think of you as messier than others. It's not that you're disorganized, it's just that you might use different systems to organize (by theme, by subject, by color). Straight alphabetization and rigidly ordered folders are not typical of right-brained behavior.

You are also more intuitive than many. When it comes to reading literature, you probably prefer creative writing or fiction over nonfiction. And when it comes to doing math, you might find you enjoy geometry more than other forms like algebra.


Kunngjört af Löllskj at 09:52

lögskýringar eru SVOOOO LEIÐINLEGAR!!!!

Kisan á ammli í dag, til hamingju með að verða orðin löggilt kat!


Kunngjört af Löllskj at 05:54

Saturday, September 14, 2002

Auglýsing sem kom til mín á einkamál:

Ég er 49 ára giftur og á 3 uppkomin börn. Ég er frammhaldsskólakennari Hef gaman af að spjalla við stráka (gifta/ógifta) um flest, kannske helst um samskipti kynjanna, eða svosem hvað sem er. Ég er ekki að leita eftir skyndikynnum, bara skemmtilegu og spennandi spjalli hér.Ef þetta vekur áhuga, sendu mér póst

segir síðan við mig:

Viltu koma á spjallið og ræða ríðingar

Ég sem hélt hann væri bara að leita eftir spennandi spjalli....kannski það hafi þó bara verði það eina sem hann er að leita að??????????....I don't think so!

Í auglýsingunni minni kemur síðan skýrt fram að ég sé gagnkynhneigður!!!.......sorry elvis


Kunngjört af Löllskj at 06:35

Ég var að sjá carrot top með systur minni....þvílíkt *æl*!!! Ég ætla ekki einu sinni að hafa eftir ömurleikann sem var í þessu hvel****. Það bjargaði mér(or so i thought) að stelpan fór út í fótbolta, og þá gat ég farið að horfa á tom green, en NEI, það tók sko ekki mikið betra við þar! Treilerhyski og ekkert annað, sem gera hvað sem er fyrir 3 mínútur of fame meira *æl*. Ég var NÆSTUM búinn að skipta yfir á carrot top, en vissi að þar bíði mín enn verri hörmung, þannig að ég fór bara að lesa kafla úr kröfurétti þangað til ég varð rangeygður:s STAY AWAY FROM CARROT TOP AND THE TOM GREEN SHOW!!!!


Kunngjört af Löllskj at 06:23

Friday, September 13, 2002





How Does *Your* Dick Rate?

hmmm....SO TRUE!!!


Kunngjört af Löllskj at 17:19

Mig svíður alltaf í nýskeint rassgatið þegar skjáreinn ( I ) er að auglýsa innlit/útlit, mér finnst þessar auglýsingar snúist ekki um neitt nema....já, já, já, já, já, já einmitt, jaaaáhhhh(með ÞVÍLÍKU innsogi) já ohohohoho(gervilegur píkuhlátur), já, já, já, já, já, já, já, já einmitt, já................ÓGEÐ!!!!
svo sá ég Völu Matt í hagkaup skeifunni um síðustu jól, þá var hún ekki meikuð, manneskjan er hreint út sagt ÓGEÐSLEG!!!!!!!! og slæm þótti mér hún þegar ég sá hana í matt


Kunngjört af Löllskj at 10:30

HEILAGAR TAÐKÚLUR!!!.....Það eru meiri selebbs í tímum memmmér!!!! Hver haldðiggi að það sé önnur en Dalla Ólafsdóttir forseta!!! Nú verður strákurinn frægari og frægari!!!


Kunngjört af Löllskj at 07:56

Thursday, September 12, 2002

Ég lofa lista yfir fellow laganemum í komandi bloggum......it WILL be an interesting reading material...you wouldn't believe the selebbs!


Kunngjört af Löllskj at 09:19

Maður er alltaf að upplifa dimmisjónröðina all over again, þegar mar fer í þessa "blessuðu" tíma, enda ekki við öðru að búast, þegar 250 manns eru að allir að reyna að komast inní 200 manna sal í einu:s Það vill náttla enginn þurfa að sitja á gólfinu, eða úti í anddyri, en það er hlutskipti þeirra sem koma síðast...good on them!


Kunngjört af Löllskj at 06:00

Jeij!!! Nú er Sonny loksins nettengdur!!!! Nú kemur MEIRA ogÖFLUGRA blogg, eða kannski bara meiri vitleysa, og minna gæðablogg? Who knows right


Kunngjört af Löllskj at 03:42

Gestur nr. 1100...ÞÚ ÁTT að gera grein fyrir þér!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Thank you come again:D


Kunngjört af Löllskj at 03:02

Það er gaman í skólanum þegar mar hittir á gamla kunningja, sem mar hélt að mar myndi aldrei fá að sjá aftur!


Kunngjört af Löllskj at 02:59

meira um vidjoid i gaer. strakurinn var bara med storu alla myndina{tangad til kom ad vaemnum hlutum, ta var bara bloggad} Ef eg hefdi ekki verid sona turr i augunum eftir storuna, ta hefdi eitt og eitt og eitt tar fallid!


Kunngjört af Löllskj at 01:41

Wednesday, September 11, 2002

Það að horfa á heimildarmyndina um árásina á wtc made me realize, just how lucky i really am! although it's a longshot, þá er það staðreynd, að ég var í norðurturninum fyrir 4 árum síðan, ég var að sjá í heimildarmyndinni inní turninn, þegar hann hrundi, one has to think about, WHAT IF þetta hefði skeð þá!?!?!? Þá væri enginn steinn hérna til að blogga:s


Kunngjört af Löllskj at 16:06

OJ einn gaur sem er með mér í lögfræði(já þetta er gaur, ef mark er takandi á barkakýlinu)er MEÐ tits! og gengur um Í BRJÓSTAHALDARA!!!, ekki það að ég hafi eitthvað á móti því, þvert á móti, hann má vera eins krípí og ógðeðslegur og hann vill, við lifum jú í frjálsu landi...YET


Kunngjört af Löllskj at 08:48

11. sept er í dag, eins og allir vita, I presume! Ég ætla ekkert að vera með einhverja vitleysu um hvað þetta var hræðilegur atburður, hvernig hann breytti heimsmyndinni og allt solis...It's already been done! Nei, ég ætla bara að segja að með svona vitleysu, eigum við engann séns(ég veit, steinninn á ekkert að vera tilfinningarsamur, but in this case, i'll make an exception)


Kunngjört af Löllskj at 01:45

Tuesday, September 10, 2002

Mér finnst tilveran ekkert vera að standa sig sko....hún virðist ekkert vera á leiðinni að linka á steininn, en ég er viss um að boðskapur steinsins á VEL heima þar!!! Þrátt fyrir að mig grunar að þeir linki bara á stelpur, hvort sem þær hafa eitthvað að segja, eða stráka sem búa til klámsögur....that's it! Steinninn er að fá yfir 100 heimsóknir á viku, til að mynda komu 1000 manns á síðuna á 5 vikum! Ég er GEGT! stoltur af þeim árangri!
Ég býst ekki við miklum árangri af samskiptum mínum við tilveruna, en ég bíð samt pungsveittur þangað til!


Kunngjört af Löllskj at 14:08

Mér finnst að það ætti að banna fólki að líta rosalega eins út og fólk sem ég þekki, þá er ég allana ekki að heilsa því eins og einhver hálfviti og þaðan af verra!
Síðan ætti að banna fólki að svara manni ekki, vera yfir mann hafið, ef mar spyr það einhverra spurninga! Það veldur því fólki bara skaða, note to self after löllöndia hefur verið stofnuð, bannað að líta út eins og fólk sem ég þekki, og ekki hundsa mig þegar ég spyr einhvern spurninga, JAFNVEL þó svo ég lykti illa


Kunngjört af Löllskj at 06:17

Rosla er leilett að vera í þjóðarbókhlöðunni þegar það er vont rok úti! Það hvín svo í einhverju draslinu hérna að það hljómar eins og loftvarnarsírena...ekki kúl, mar bíður eftir því að einhver öskri WE'RE ALL GONNA DIE!!! og allir hlaupa í örvæntingu út um allt, allir reyna að komast í gegnum skellihurðina, enginn hugsar um annað en sig, upplausn og óeirðir munu fylla húsið, lögreglan þarf að sprauta táragasi inn um loftræstikerfið, menn fara að halda gísla, lög gegn notkun, burð og varðveislu skotvopna verða að engu höfð. Upplausn mun ríkja, sem mun breiða sig út til samfélagsins, jafnvel frá útjaðrarkjálka eins og seltjarnarnesinu. Óeirðirnar munu leiða til byltingar, ríkisstjórnin verður felld. Nýr leiðtogi mun taka við, sem mun stjórna landinu með heilaþvætti og heraga. Byltingin ER í nánd!


Kunngjört af Löllskj at 04:23

jeij, ég er að rústa könnunninninninninninninninni á heimasíðunni hennar Esther, ég er meira að segja að vinna kisuna!!! Ætli f-5 takkinn hjá sumum sé ekki útsjúskaður???hmmmmm;) Seiji sona


Kunngjört af Löllskj at 04:10

ALLIR að fara á heimasíðu esthers og kjósi mig sem mest heimsótta bloggið!


Kunngjört af Löllskj at 01:48

Monday, September 09, 2002

1000 heimsóknamúrinn hefur verið rofinn, hver sá sem rauf hann á það inni hjá sér að gefa mér eitthvað fallegt!!!


Kunngjört af Löllskj at 14:56

Sunday, September 08, 2002

loksins loksins loksins lét ég verða af því að horfa á jay and silent bob strike back, enda kevin smith fokking snillingur....og bjóst ég þess vegna við miklu af þessum líka gæðaleikstjóra.....kannski er ég loksins að verða stór, eða myndin var bara below my expectations, það kom nokkrum sinnum frá mér heheheeee.....einu sinni eða tvisvar HEH...ekkert voða mikið meira, ég er farinn að eldast uppúr prumphommabröndurum. Nenni ómla að segja meira um'sa mynd.
sá reyndar túm reider líka, hún var alveg tussugóð, og andsjelína dsjólí tussuflott sko! enda ekki að ástæðulausu að stelpur, sem alla jafnan eru BARA fyrir stráka, væru til í að sofa hjá henni!


Kunngjört af Löllskj at 11:15

ég er alveg að ná 1000asta gestinum mínum....ví mi hlakkar svo til, það hafa aldrei sona margir hlustað á mig......enda engin banvæn svitafýla til að fæla fólk frá.......þó hefur hún ekki verið jafnbanvæn og andardrátturinn frá gaurnum sem sat fyrir aftan mig í lögfræði á föstudaginn, það var eins og hann væri að leggja sig fram um að anda á hausinn minn, og mig langar ekkert sérstaklega til að fá að vita hvenær hann burstaði tennurnar, en það þori ég að fullyrða að það er töluverður tími síðan.....þetta var eins og versti morguninneftirbrundpíkusafafyllirístimburmannaandfýla sem ég hef fundið! OJJ!!!.....ég get svarið það, að ef að stelpan sem er alltaf í flegnum bolum sæti ekki við hliðina á mér, þá hefðu þessir föstudagstímar verið með öllu óbærilegir!!(ég er handviss um að stelpan í flegna bolnum er með silicon.....her breasts are just TOO firm....ekki það að ég hafi eitthvað verið að horfa hóst*hóst)


Kunngjört af Löllskj at 02:23

Saturday, September 07, 2002

Ég er ekki nema $1,836,424.00.virði, allana skv. því sem hjúmann for seil, ætli þeir taki við seglum fyrir eina ambátt....ég er OF fyndinn.
Þannig að ef anyone's interested, we could always talk;D


Kunngjört af Löllskj at 14:39

ég reyndi að horfa á ossborns áðan, vissulega er þetta klikkuð fjölskylda, en ég er á því að það eru fáir aðrir en hörðustu aðdáendur sem eru mikið að horfa á þessa vitlusu, fyrir utan náttla fólk sem hefur sjúklega athygli að fylgjast með "other peoples lives"! Ég verð samt að viðurkenna að ef ég væri það perverse, og/eða hefði ekkert betra að gera, myndi ég definetaly einmitt horfa á þessa þætti, but since i'm not, i won't!


Kunngjört af Löllskj at 14:11

Friday, September 06, 2002

Laganemar fóru í lautarferð á þingvöll í dag, með viðkomu í mjólkurbúðinni Heiðrúni í dag....Ég er svo mikið félagsprump að ég fór ekki......enda þurfti ég að sjá um mikilvægari hluti, s.s. taka til í herberginu mínum, þvo bílinn, bóna bílinn, elda matinn, þvo upp, læra, og ójá, keyra heim til fjarskanistan!


Kunngjört af Löllskj at 16:28

Rosalega er skrýtið fólk með mér í lögfræði, hér kemur enn ein sagan:
Við hliðina á mér hlossaðist einn langur, creepy gauji, ruddist bara fyrir framan eina stelpuna sem ætlaði að fá sér annað sætið, síðan sagði hann bara við hana þegar hún ætlaði að setjast, ,,nei, þetta er frátekið, finndu þér bara sæti annarsstaðar". Hann var frekur, eða ákafur skulum við segja, á plássið sitt, ég fékk ekkert að hafa vinstri höndina á handborðinu, skulti bara hafa hana í kjöltunni(didn't feel it to be the time or place though). Einnig var hann of upptekinn við að bora í nefið á sér allann tímann, til að þurfa að glósa eitthvað sem að kennarinn var að segja. Ég þoli ekki sona fólk, sem er að taka sæti, þegar það eru jafnfá á lausu og raunin er í þessu tískufagi sem lögfræðin í raun er! Ég veit vel hve pirrandi það er að sitja á gólfinu í 3 tíma, maður verður ennþá rasssárari heldur en þegar mar situr 3 tíma í sæti! allir sem hafa séð lord of the rings í bíó án hlés vita um hvað ég er að tala. ef einhver sem les þetta er að fara í lögfræði, eða er í lögfræði, ekki fara nema þú virkilega ert að fara að læra þetta, því'da er ERFITT og það eru ekki miklar líkur á að þú fáir sæti, nema þú komi 1/2 tíma 3 korterum áður en tíminn byrjar.


Kunngjört af Löllskj at 15:03

Thursday, September 05, 2002

Mér finnst einkeddni engann veginn nóg um fjörugar umræður á tag-borðinu mínu...hmmmm, wonder why that could be, ekki er það leiðinlegt fólk sem lesir sína, ég geri það sjálfur(f-5takkinn í hávegum hafður) og ekki finnst mér ég vera leiðinlegur.
kisan, kemur stundum óvart hingað, ekki er hún leiðinleg, esther kemur stundum hingað líka, hún er ekki leiðinleg heldur sko bara! og það sama má segja um alla hina sem hafa skrifað í gestabókina, enda hefur ekki ein einasta hræða sagt að steinninn sé ekki kúl!
ójá, æslilí og guðnýgrrrr er með þeim flottari!


Kunngjört af Löllskj at 14:29

Ég nenni ekki að skrifa neitt núna, en ég er alveg sammála kisunni, sem er ekki með traustann sonny eins og ég.......þessar háskólakórsmyndir sleikja loðnafeitaóskeindapungsveittabossa! ég er falskur eins og helvíti, þó ekki eins og lögfræðikennarinn í dag, hún kom með falskari tóna heldur en strákur í mútum.......margoft heyrði mar í bældum hlátri, svipuðum hnohnohnohno hlátri frakkanna, það er farið að verða gaman í skólanum:)


Kunngjört af Löllskj at 11:05

Wednesday, September 04, 2002

Ég er alltaf að læra meira og meira í skólanum...ég komst til dæmis að því að önnur strætóstelpan er með mér í laganámi, allaveganna var hún í tíma, veit um fáa sem færu í tima, án þess að vera virkilega þar til að læra, þó svo að ég hafi séð einn, sem greinilega virtist vera hafa skráður í tímann(hann kom meira að segja með fartölvu með sér) but that's about it, gaurinn sat þarna í 3 f-in tíma, and that's about it, ég meina þvílík tíma og peningaeyðsla, að hlusta á einhvern kall, tala um ekki neitt(að því er hann leit út fyrir að halda) í 3 fockin tíma, og hafa borgað 30.000 kall fyrir....kommon! ég skil þetta ekki sko.
hins vegar var gaman að sjá að ein strippdrottning landsins var ekki að strippast í tíma með mér, það var gaman að sjá sílikonbætt brjóstin hennar þegar mar nennti ekki að hlusta á kennarann kjafta, en rankaði strax við sér þegar hún stóð mann að verki!!!!!


Kunngjört af Löllskj at 15:37

Tuesday, September 03, 2002

Jæjamm, þár ég kominn í skólann. Leist ágætlega á, en við sjáum bara til með framhaldið, þ.e.a.s. hvort ég nenni yfir höfuð að vera þarna, vegna gífurlegs stress hjá "the old folks"....ekki kúl!
Ég fór í smáralindina, while i was waiting for my ride home, fór ég í smáralindina. hefði þótt frekar gaman í legoheiminum, hefði ég verið 10 árum yngri, but i'm not, so i only took a look around. Það var ekkert að gerast þar, frekar en venjulega, þannig að ég fór bara aftur í brummann minn. Á leiðinni tók ég eftir nokkrum strákum, sem voru í þong og brjóstahaldara, and that's about IT!!!!!!!!!! I couldn't help but NOT being aroused by that, hló hátt innan í mér, meðan ég grét að utan. síðan þegar ég komst í var, skellihló ég, feginn ég að vera bara busi í háskólanum, en ekki í MK:D Það eru bara brjálæðingar þarna í kópavoginum!


Kunngjört af Löllskj at 02:10

Sunday, September 01, 2002

ég hélt ég myndi ALDREI horfa á harry potter!!!! en ég lenti í því að passa lítinn frænda minn í gær, og viti menn, hann kom með harry potter á íslensku. strákurinn bjóst við endalausum leiðindum, en því var nú öðru nær, þetta var nú helvíti góð mynd! as a matter of fact átti ég í stökustu vandræðum með að slíta mig frá henni og fara í vinnu! Bjóst hreinlega ekki við að ég ætti eftir að fíla fjölskyldumynd, en það var nú öðru nær....ég á frekar líklega eftir að sjá næstu harry potter myndir, and i might even enjoy it? það er víst að sá sem missir tengslin við sitt innra barn, er fátækari heldur en sárasti fátæklingur!


Kunngjört af Löllskj at 14:08

Ég hætti í vinnuni í kvöld, og byrja í skólanum á morgun.....ég veit ekki hvernig ég á að höndla hlutina!!!:S Ef einhver hefur ráð....let me know!


Kunngjört af Löllskj at 01:32


Þetta er saga manns sem fæddist með það lítilláta markmið að leiða heiminn í átt að betri heimi.
Þetta er mín saga

Skoðaðu gestabókið mitt
Skrifaðu í gestabókið mitt
maystar designsmaystar designsmaystar designs